Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Rann á hjarni Siglfirðingur vann Gífurlegur snjór Íslandsmót (1) Íslandsmót (2) Vélsleði skáta Þotukeppni Þyrla sótti slasaðan Snjóþungi í mars Halla Haraldsdóttir Afreksmaður ... Dakoda flugvél á Sigló Haförninn og .. Hvað heitir paddan Með Haferninum Heimasætur Tilraun með síld Saltað í flestum.. ASN þingfulltrúar Strákagöng senn Einangrun rofin Fréttir og prestar

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

 Laugardagur 11. nóvember 1967

Ljósmyndir: Steingrímur, texti: Freysteinn Jóhannsson

Einangrun Siglufjarðar

rofin

Strákagöng opnuð formlega í gær.

Siglufirði 10. nóvember, frá blaðamanni Mbl. Freysteini Jóhannessyni.

Séð inn Strákagöng

LENGSTU vegagöng á Íslandi - Strákagöng við Siglufjörð voru formlega opnuð til umferð ar í  gær. Þar með er lokið áralangri einangrun Siglufjarðar á landi og hann kominn í varanlegt  vegasamband við þjóðvegakerfi landsins.

Mikill hátíðabragur var á Siglufirði í tilefni dagsins,  fánar blöktu víða við hún og verslunum og skrifstofum var lokað meðan athöfnin fór .fram. - Þá  var einnig gefið frí í skólum bæjarins. Siglfirðingar fjölmenntu út að Strákagöngum þegar þau  voru opnuð og mikil gleði ríkti í öllum bænum.Hófst athöfnin kl. 1, en viðstaddir voru auk Ingólfs Jónssonar, samgöngumála-ráðherra, flestir  þingmenn kjördæmisins og fjöldi annarra gesta.

Strákagöng, lengstu vegagöng landsins opnuð til umferðar. Ung stelpa Margrét Jónsdóttir frá Stóradal í Austur Húnavatnssýslu klippir hér á snúruna, en hjá henni stendur Ingólfur Jónsson, samgönguráðherra

Hinn nýi vegur frá Hraunum í fljótum, um Sauðanes og Stráka til Siglufjarðar, er alls  19 km. langur. Þar af eru jarðgöngin um Stráka 793 metrar að lengd. Göngin eru 4,5 m á breidd og 5,5 m á hæð. Í  göngunum er ein steypt akbraut 3,2 m breið, með steyptum kantsteinum beggja vegna . Þá eru í  þeim fjögur útskot þar sem bílar geta mæst.

Fyrsta bifreiðin sem ekur í gegn um göngin eftir formlega opnun. Mikill mannfjöldi hafði safnast saman til að fylgjast með opnunarathöfninni, ein og sjá má á myndinni.

 

Heildarkostnaður var um  70  milljónir króna, þar af  kostuðu jarðgöngin 41 milljón. Ingólfur Jónsson  samgöngumálaráðherra, opnaði, göngin með ræðu og sagði m.a.: Lengi hafa  staðið yfir athuganir á því hvernig koma mætti Siglufirði í vegasamband. Árið 1954, var  samþykkt tillaga á Alþingi um, að fela ríkis-stjórninni að láta athuga með hverjum hætti Siglufirði yrði komið í varanlegt vegasamband við Skagafjörð. Greinargerð um þær athuganir sem  fram fóru sendi þáverandi vegamálastjóri Geir G. Zoega, samgöngumálaráðuneytinu, í árs  byrjun 1958. Samkvæmt lauslegri kostnaðaráætlun er fylgdi greinargerðinni var talið að vegurinn frá Heljartröð um Mánárskriður og Stráka, til Siglufjarðar mundi kosta um 10 milljónir  króna og var þar ekki gert ráð fyrir jarðgöngum um Stráka. Leiðin úr fjarðarbotni yfir í Nautadal var áætluð 27 miljónir og var gert ráð fyrir 3,5 km. löngum jarðgöngum  var ekki talið að sú leið kæmi til greina vegna kostnaðar. Gerð var nánari athugun á Strákum, af Tómasi Tryggvasyni, jarðfræðingi og ákveðið af honum og Snæbirni Jónassyni, yfirverkfræðingi, hvar göngin skyldu  liggja gegnum fjallið Siglu-fjarðarmegin, enda hafði athugun þessi leitt í ljós, að jarðgöng  yrðu að öllu leyti hentugri en vegur utan í fjallinu.

 Gerðar voru umfangsmiklar jarðfræðilegar  athuganir á fjallinu á árunum 1963 og 1964. Seint á árinu 1964 kom til landsins verkfræðingur  frá norsku vegagerðinni, til þess að aðstoða og undirbúa útboð í jarðgangna gerð gegnum  Stráka. í mars 1965 var auglýst eftir tilboðum í jarðgangnagerðina. Efrafall hf. átti lægsta tilboðið  18,2 milljónir króna í 4,5 m breið göng.

Sumarið, 1965 hófst framkvæmd við jarðgöngin og var  verkinu skilað til vegagerðarinnar í september í haust. Sprenging gangnanna tók lengri tíma en í fyrstu var áætlað, þar sem bergið reyndist sprungið  og laust í sér á. köflum, að styrkja þurfti göngin með stálbogum meðan unnið var að sprengingum.

 Kostnaður við styrkingarnar var ekki reiknaður með í tilboði verktakanna og hefur það ásamt  fleiru leitt til þess, að verkið er mun dýrara en tilboð verktakans var. Loft gangnanna hefur  verið styrkt til þess að fyrirbyggja hrun sem gæti orsakað  slys eða truflun á umferð. 150 metrar  af göngunum eru fóðraðir, þar sem bergið var lélegast. Vera má að nauðsyn beri til að setja net í mestan hluta loftsins til þess að gæta fyllsta öryggis. Það mun kosta allmikið fé en um það dugar ekki að fást ef fyllsta öryggi fæst ekki með öðru móti.

 Að lokum sagði ráðherrann: Ég vil að lokum þakka vega-málastjóra, yfirverkfræðingi  og öðrum verkfræðingum vegagerðarinnar, verkstjórum og verkamönnum, sem að  jarðgöngum og vegagerðinni hafa unnið ágætt.verk Íbúum Siglufjarðar og öðrum þeim sem  verksins njóta óska ég til hamingju og vona að framkvæmdin megi verða til farsældar og gengis fyrir bæjarfélagið, nærliggjandi byggðir og landið  allt Þess skal sérstaklega óskað að maður sá sem varð fyrir  slysi í sambandi við þetta verk fái fullan bata, og að ekki óhöpp eða slys vegna umferðar um þessi fyrstu  jarðgöng, sem gerð hafa verið hér á landi.

Heill fylgi þessari framkvæmd. Megi þjóðin halda  áfram uppbyggingarstarfi og treysta undirstöður atvinnulífsins, til tryggingar fyrir batnandi  lífskjörum. Að svo mæltu lýsi ég jarðgöngin um Stráka opin til umferðar.

 Þegar ráðherra hafði formlega opnað göngin, tók til máls Stefán Friðbjarnarson, bæjarstjóri á  Siglufirði. Í ræðu sinni fagnaði hann þessari samgöngubót Siglfirðinga og þakkaði öllum þeim  sem höfðu stuðlað að framkvæmd hennar. Lúðrasveit Siglufjarðar lék nokkur lög, með því  lauk athöfninni við Strákagöng.

Bæjarstjórn Siglufjarðar bauð gestum til hádegisverðar að Hótel Höfn. Ragnar Jóhannesson,  forseti bæjarstjórnar, bauð gesti velkomna og stjórnaði hófinu. Undir borðum voru fluttar  margar ræður og tók Sigurður Jóhannes-son, vegamálastjóri, fyrstur til máls en einnig talaði Árni  Snævar, framkvæmdastjóri Efrafalls, sem sá um framkvæmdirnar. Síðan töluðu þingmenn og  fleiri gestir og Björn Jónsson bóndi í Bæ, flutti Siglfirðingum árnaðaróskir Skagfirðinga.

 Þá bárust Siglufjarðarbæ einnig mörg heillaóskaskeyti í tilefni þessara merku tímamóta í  framfarasögu bæjarins

===========================

Tengill til áforma um ný jarðgöng: Siglufjörður - Ólafsfjörður, hér

Athygliverð frétt af vegamálum og jarðgangna tillögum frá árinu 1929   og fleira tengt vegamálum Siglfirðinga í "gamla daga"  Hér