Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Rann á hjarni Siglfirðingur vann Gífurlegur snjór Íslandsmót (1) Íslandsmót (2) Vélsleði skáta Þotukeppni Þyrla sótti slasaðan Snjóþungi í mars Halla Haraldsdóttir Afreksmaður ... Dakoda flugvél á Sigló Haförninn og .. Hvað heitir paddan Með Haferninum Heimasætur Tilraun með síld Saltað í flestum.. ASN þingfulltrúar Strákagöng senn Einangrun rofin Fréttir og prestar

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Mánudagur 31. maí. Ljósmynd og texti: Steingrímur

Dakoda-flugvél lendir á Siglufirði

SIGLUFIRÐI, 30. maí. - Fyrir  nokkrum dögum var opnaður nýr flugvöllur hér í botni fjarðarins, er hann ætlaður minni flugvélum, 8-10 manna, en í dag bar það til tíðinda að Dakota flugvél lenti þar. Þetta  þótti viðburður, því að Siglfirðingum hafði verið sagt að svo stórar véler gætu ekki  lent þar. En þarna var auðsjáanlega um reynslulendingar að ræða, því flugvélin  lenti og hóf sig til flugs 5-6 sinnum. Þetta var flugvél frá

Flugfélaginu Flugsýn, ég  hringdi í umboðsmann flugfélagsins, Gest Fanndal og

spurði frétta. Sagði hann  mér m. a. að þarna hefði verið um að ræða tilraunaflug af hálfu félagsins, sem tekist  hefði í alla staði mjög vel.

Þarna voru þrír flugmenn með, sem reyndu lendingargæði  vallarins og létu allir vel af. En að því marki, að ekki væru fleiri farþegar en 10-15  um borð, þar sem flugbrautin væri ekki nema 750 m. Jafnframt sagði Gestur mér  að flugfélagið hefði hug á að kaupa sér minni vél, 10-15 farþega, sem ekki þyrfti  nema 350 m braut.

Flugsýn hefur undanfarin 5-6 ár haldið uppi ferðum hingað og m.a. yfir  sumar tíman staðsett flugvél hér tilbúna til þjónustu.     SK..