Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Rann á hjarni Siglfirðingur vann Gífurlegur snjór Íslandsmót (1) Íslandsmót (2) Vélsleði skáta Þotukeppni Þyrla sótti slasaðan Snjóþungi í mars Halla Haraldsdóttir Afreksmaður ... Dakoda flugvél á Sigló Haförninn og .. Hvað heitir paddan Með Haferninum Heimasætur Tilraun með síld Saltað í flestum.. ASN þingfulltrúar Strákagöng senn Einangrun rofin Fréttir og prestar

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

  Föstudagur 25. ágúst 1967.

Ljósmynd: Hafliði Guðmundsson (sennilega)

Tilraun til að setja síld í saltpækil á miðunum

Siglufirði, 24. ágúst,

TVEIR, Siglfirðingar, Hafliði Guð-mundsson, kennari og Pétur  Baldvinsson, verkstjóri, gerðu nýlega tilraun með að láta ferska síld í saltpækil og hefur  hún að  sögn þeirra tekist mjög vel. Mun það ætlun Síldarverksmiðja ríkisins að gera nú tilraun þessa í  stærri mæli, en þeir félagar og hefur verksmiðjan í þeim tilgangi látið smíða um það bil 5 lesta  geymi, sem settur hefur verið um borð í Haförninn.

Aðferð þeirra félaga er í því fólgin að þeir fá skipverja á Haferninum til þess að setja ferska  síld í tunnur með pækli úti á miðum:  Síldinni er steypt beint í tunnurnar, án þess að nokkuð sé  gert að henni, fyrr en í land kemur, þá er hún hausuð og slógdregin. Tilraun þessi hefur að sögn  þeirra félaga tekst svo vel að í fyrradag ætluðu þeir með tvær síldar á silfurfat.i til  forráðamanna SR hér til þess að sýna þeim vöruna. Telja þeir félagar að þeir hafi sannað að þessi aðferð sé algjörlega örugg.

Um borð í Haferninum er nú 5 lesta tankur með pækli og  ætlar SR að reyna þessa aðferð i stærri mæli. Sá er þó hængur á enn, að ekki hefur fengist nógu  fersk síld til þess að setja í pækilinn.  

Þannig leit síldin út,  er tunnurnar voru opnaðar eftir 4-5 sólarhringa stím - og í útliti  eins og ný.

                            - Steingrímur.

Síldin til Síldarútvegsnefndar en ekki til SR

MISHERMI, var í frétt blaðsins í gær (frétt hér fyrir ofan) varðandi tilraunina að setja síld í saltpækil, þar sem sagt var að færa ætti SR tvær  síldar á silfurfati. Þar átti að vera, að þeir félagar Hafliði og Pétur ætluðu að fara með tvær síldar á silfurfati á skrifstofu  Síldarútvegsnefndar, þegar síldin væri. fullverkuð. Leiðréttist þetta hér með.

Mbl.