Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Rann á hjarni Siglfirðingur vann Gífurlegur snjór Íslandsmót (1) Íslandsmót (2) Vélsleði skáta Þotukeppni Þyrla sótti slasaðan Snjóþungi í mars Halla Haraldsdóttir Afreksmaður ... Dakoda flugvél á Sigló Haförninn og .. Hvað heitir paddan Með Haferninum Heimasætur Tilraun með síld Saltað í flestum.. ASN þingfulltrúar Strákagöng senn Einangrun rofin Fréttir og prestar

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka
Fleiri myndir

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Miðvikudagur 29. mars 1967  Síða 1. Myndir og texti: SK      Skíðalandsmótið á Siglufirði

Óveður setti svip á mótið ásamt unga fólkinu.

Frábær undirbúningur og  framkvæmd Siglfirðinga.

HIÐ unga skíðafólk sem mestan svip setti á landsmótið á Siglufirði um  páskahelgina fékk sannarlega eldskírn veðurguðanna. Mestan hluta keppnistímans  var stórhríð og stormur og vægast sagt mjög erfiðar aðstæður. En skíðafólkið lét  ekki bugast. hundruð Siglfirðinga, sem unnu að undirbúningi og framkvæmd þessa  móts unnu einnig Sinn sigur þrátt fyrir hinar erfiðu og óvæntu aðstæður. Steingrímur  Kristinsson fréttamaður Morgunblaðsins á Siglufirði segir hér frá Landsmótinu og myndir hans  fylgja með.

Þessir kunna til verka - og eru landskunnir, enda fáir hlotið jafnmarga verðlaunapeninga á skíðamótum.  Um tíma skiptust þeir á að bera titilinn „Skíðakóngur Íslands." Þetta eru Jón Þorsteinsson og Jónas  Ásgeirsson, báðir frá Siglufirði. Þeir eru þarna að leggja síðustu hönd á „Stóra bola" en svo er  stökkpallurinn nefndur. Eftir langan og glæslegan keppnisferil eru þeir hættir keppni en vinna enn  að skíðaíþróttinni,

1 dagur. 2l. mars:

SKÍÐAMÓT ÍSLANDS 1967 hófst með því að mótstjórinn  Sverrir Sveinsson, flutti ávarp og lýsti Skíðamót Íslands 1967 sett. 

Lúðrasveit Siglufjarðar lék nokkur lög og þar á meðal einn frumsaminn  Skíðamars, eftir stjórnanda Lúðasveitarinnar Gerhald Schmidt. En marsinn en  helgaður Skíðamóti Íslands 1967

Því næst voru keppendur í fyrstu grein mótsins 15 km göngu, 20 ára og eldri,  ræstir hver af öðrum með 30 sekúnda millibili. Skráðir keppendur voru 20 en  nokkrir höfðu fallið út af keppnisskrá af ýmsum ástæðum.

Því var strax spáð af áhorfendum að þetta mundi verða geisi hörð keppni, og þá  helst á milli Gunnars Guðmunds-sonar Siglufirði, Þórhallar Sveinssonar Siglufirði. Kristjáns  Guðmundssonar Ísafirði,  Birgis Guðlaugssonar Siglufirði ofl.Af nýliðunum í þessum aldursflokki vakti mesta athygli mína ungur garpur úr Fljótum, Trausti Sveinsson. Hann er  mjög stæltur göngumaður og að mínu viti á hann ekki langt eftir í að ná fullkomnum  göngustíl. Og ekki kæmi mér á óvart þó Trausti yrði, áður en mörg Íslandsmót líða  Íslandsmeistari í 15 km. göngu

Keppnin varð mjög hörð eins og spáð hafði verið og einnig mjög jöfn td. munaði aðeins 1,5 sek á  sigurvegaranum Gunnari Guðmundssyni, Siglufirði og Kristjáni Guðmundssyni Ísafirði sem varð annar, þriðji varð Þórhallur Sveinsson S, og  fjórði Trausti Sverrisson, Fljótum.

Að lokinni keppni í 16 km. göngu hófst keppni 1 10 km. göngu 17-19 ára.

Í þessari keppni var af flestum spáð sigri, Sigurjóni  Erlendssyni, Siglufirði, en oft fer öðruvísi en til  spáð er. En Sigurvegarinn varð Jón Ásmundsson úr Fljótum og  var hann 1 mínútu og 19 sekúndum á undar Sigurjóni sem  varð annar að þessu sinni. Það má segja að eini  spenningurinn í þessar keppni hafi verið á milli  Sigurjóns og Jóns Ásmundssonar, að eins 8 keppendur tóku  þátt keppninni, og voru þeir frekar ójafnir keppendur.

2. dagur 22. mars

Stökkkeppni í tveim aldursflokkum, það leit frekar illa út með veður þennan dag,  með tilliti til Stökkkeppni, því æskilegast og raunar nauðsynlegt er að hafa bæði logn og úrkomulaust þegar keppt er í  þessari grein. Um morguninn hafði verið mikil snjókoma og golukaldi, en upp úr kl.  3 eftir hádegi, stillti veður lítilssáttar og von vara um að stytti upp og var  ákveðið að keppendur mættu til nafnkalls við “Stórabola” en svo nefnist  stærsti skíðastökkpallur Siglfirðinga Alls voru skráðir til keppni 19 keppendur  samtals í báðum aldursflokkum 16 í eldri flokk en 3 í yngri flokk. Það er óhætt að  segja að þessi keppni, (að þessu sinni) sé einskonar bæjarkeppni á milli Siglfirðinga sem „átt" hafa stökkið um áraraðir og Ólafsfirðinga  sem

sífellt eru að færa sig upp á skaftið, hvað dug snertir í þessari grein. 14 Siglfirðingar voru  skráðir til leiks 4 Ólafsfirðingar og 1 frá UMSE

Veður var óhagstætt, eins og áður segir, gekk á með lognél og má segja að  tilviljunin hafi ráðið hvort keppendur stukku langt eða stutt. Því ef náði til að snjóa í slóðina, þá hefti það rennsli fyrstu 2ja-3ja keppenda, sem lentu í  því að „slípa" brautina og oftast lenti það á rásnúmerum 1-2. Stundum varð að  hætta keppni nokkrar mínútur vegna snjókomu.Um einslaka stökkmenn má margt segja til dæmis Skarphéðinn Guðmundsson  Siglufirði, sem oft hefur borið titilinn; “Íslandsmeistari” í stökki, sýndi að hann hefur ekki gleymt stökkinu,  stökk hans voru bæði löng og falleg. Sigurður Þorkelsson Siglufirði, sýndi fallegan  stíl og nokkuð örugga lendingu, en þó vantar hann lengri stökk, Haukur  Freysteinsson Siglufirði er „sterkur" stökkmaður,  stekkur langt og er öruggur í lendingu, en honum vantar  stökkstíl. Steingrímur Garðarsson Siglufirði sýndi bæði  falleg og löng stökk og nokkuð öryggi. Svanberg  Þórðarson Ólafsfirði

er nokkuð öruggur stökkvari bæði  hvað stökklengd og lendingu snertir, en mér þykir  stökkstíl, mjög ábótavant.

Sveinn Sveinsson Siglufirði er 1íklega einhver  traustasti og besti skíðastökkvarinn sem þarna keppti,  en hann varð óheppinn með rásnúmer, varð nr.1 og lenti  því alltaf í óslípaðri braut. Það eina sem Svein vantar er gott rennsli og æfingu, en hann er sjómaður og  er því lítill tími til æfinga. Af keppendum í flokki 17-19 ára, fannst mér Einar  Jakobsson Ólafsfirði bera af, enda sigraði hann glæsilega. Og hlutu  því Ólafsfirðingar báða Íslandsmeistarana í stökki því  Svanberg Þórðarson sigraði 1. flokki 20 ára og eldri.

Framhald á næstu blaðsíðu