Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Rann á hjarni Siglfirðingur vann Gífurlegur snjór Íslandsmót (1) Íslandsmót (2) Vélsleði skáta Þotukeppni Þyrla sótti slasaðan Snjóþungi í mars Halla Haraldsdóttir Afreksmaður ... Dakoda flugvél á Sigló Haförninn og .. Hvað heitir paddan Með Haferninum Heimasætur Tilraun með síld Saltað í flestum.. ASN þingfulltrúar Strákagöng senn Einangrun rofin Fréttir og prestar

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

    Fimmtudagur 16. apríl:  Ljósmynd og texti: Steingrímur

Halla Haraldsdóttir sýnir í Skíðahótelinu.

Siglufirði 12. apríl. - Ég frétti það í gær að listakonunni frú Höllu Haraldsdóttur hefði verið boðið norður á Akureyri  til að sýna þar listaverk sín á Skíðahótelinu. Ég brá mér heim til listakonunnar til að fá nánari fréttir. Jú, það stóð  heima, Höllu hafði verið boðið að sýna verk sín um næstu helgi 14. til 16. apríl í Skíðahótelinu.

Halla hefur áður haldið sýningar, bæði á Siglufirði og Akureyri við mikla hrifningu, enda prýða listaverk hennar nú mörg heimili víða um land. Aðspurð sagði Halla. að fólk gerði mikið að því að skrifa sér, eða tala við sig til að biðja um listaverk til kaups, en. Halla á erfitt með eð fullnægja eftirspurninni og stafar það, af því. að hún er þriggja barna móðir og sinnir fyrst heimilinu, síðan listaverkunum.

Annars er vinnuaðstaða Höllu slæm  því að vinnuherbergi hennar er  eldhúsið, bæði til heimilisstarfa  og lista, þótt hanaverk hennar  beri þess ekki vott, því að verk  hennar eru undursamleg.

Mestum vinsældum hafa náð  hin svokölluðu mósaíkmyndir  hennar, en þær eru þannig gerðar, að brúnn límpappír er málaður ýmsum litum, síðan rifinn  í smáagnir þar næst límt á fleti  eftir ákveðnu munstri, sem lista  konan rissar upp. Eru myndirnar bæði abstrakt og normalar,  allt eftir því hvað fólk vill.

Að þessu sinni sýnir Halla  fjórar vatnslitamyndir og tólf mósaíkmyndir. Annars  hefur hún líka fengist við  olíumálverk ofl - SK

Filma þessarar myndar virðist glötuð ! Hún finnst ekki, því er myndin skönnuð beint úr Mbl. og gæðin því ekki eins og æskilegt hefði verið-SK