Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Rann á hjarni Siglfirðingur vann Gífurlegur snjór Íslandsmót (1) Íslandsmót (2) Vélsleði skáta Þotukeppni Þyrla sótti slasaðan Snjóþungi í mars Halla Haraldsdóttir Afreksmaður ... Dakoda flugvél á Sigló Haförninn og .. Hvað heitir paddan Með Haferninum Heimasætur Tilraun með síld Saltað í flestum.. ASN þingfulltrúar Strákagöng senn Einangrun rofin Fréttir og prestar

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Mánudagur 22. mars 1967 Fréttin: Steingrímur

Landsmót skíðamanna:

Siglfirðingur vann fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í göngu

En krakkarnir fóru í fyrstu "snjóþotukeppnina"

SKÍÐAÐAMÓT Íslands var sett á Siglufirði í gær um kl. 4. Átti setningin að vera kl. 15:00, en beðið var eftir komu flóabátsins Drangs sem kom með  Eyfirðingana. Mótið setti Sverrir Sveinsson sem er móstjóri Lúðrasveit Siglufjarðar  lék nokkur lög þar á meðal eitt sem tileinkað var Skíðalandsmótinu 1967, eftir  stjórnanda sveitarinnar.

Þá hófst keppni í 20 km, göngu 20 ára og eldri. Varð keppnin mjög spennandi og  munaði aðeins sekúndubrotum á fyrstu mönnum lengst af.

Úrslit urðu þessi: Íslandsmeistari varð Gunnar Guðmundsson.

  1. Gunnar Guðmundsson Siglufirði 62.04 mín

  2. Kristján Guðmundsson, Ísafirði 62.04.5

  3. Þórhallur Sveinsson Siglufirði 62.39 mín

Næst var keppt f 10 km. göngu 17-19 ára og urðu úrslit þessi:

  1. Jón Ásmundsson Fljótum 41.39 mín.

  2. Sigurjón Erlendsson Siglufirði  92.58

  3. Héðinn Sverrisson HSÞ 48.41

Aðrar greinar voru ekki á keppnisskrá í gær en í dag fer fram keppni í stökki:

Áður en Landsmótið hófst fór fram nýstárleg keppni barna, sem  kölluð var snjóþotukeppnin. Er hún fólgin í keppni barna  í rennsli á hinum nýtilkomnu plastsleðum. Hafði þetta  verið vel skipulagt og kepptu annars vegar börn 4-7 ára  og hins vegar börn 7-10 ára.

Tóku um 60-70 krakkar þátt í  keppninni - sem vakti mikla kátínu áhorfanda og ánægju og spennu keppenda.

SK