Þessi vefur, Bíó-Saga Siglufjarðar. inniheldur gamlar upplýsingar og fróðleik á 104 síðum, um ýmislegt varðandi sögu kvikmyndasýninga á Siglufirði, frá upphafi. - Aflað hefur verið gagna úr gömlum heimildum, meðal annars frá bæjarblöðunum, sem gefin hafa verið út á Siglufirði, allt frá árinu 1917. Þarna kennir ýmissa fróðlegra og kynlegra "grasa", sem kemur manni til að brosa í sumum tilfellum, þar sem ýmsir pennar láta í sér "heyra" um málefni sem sumir þeirra, höfðu takmarkaða þekkingu á. Þetta efni ætti að höfða til áhugamanna um kvikmyndir, almennt, ekki aðeins Siglfirðinga.
.-Allir, þeir sem búa yfir fróðleik um bíó á Siglufirði -- og eða, öðrum gömlum sögum sem beint eða óbeint tengjast bíó. Eru beðnir að upplýsa viðkomandi, til birtingar á þessum síðum mínum. Einnig eru vel þegna aðrar ábendingar, hvaðan sem þær koma.
-Notið LEITARVÉLINA til að leita af einstökum atriðum, td. setningu eins og Litli og Stóri osfv.
Siglufjörður er sjáleg borg
segja allir.
Áður voru hér engin torg
engar hallir.
Engar götur - engin lugt,
engin bræðsla.
Enginn grútur – engin fugt,
eintóm hræðsla............
1. "Vers" af 6, úr “Ljóði frumbyggjans”, tekið úr bók Björns Dúasonar: “Síldarævintýrið á Siglufirði”
Fróðleiksmolar um kvikmyndasögu Siglufjarðar: Höfundur, ábyrgðarmaður, eigandi og hönnuður: Steingrímur Kristinsson Siglufirði.