Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Formáli Bíó Vikublaðið Fram Vikublaðið Siglfirðingur Gamli Mjölnir Mjölnir Blaðið Neisti Einherji Blaðið Brautin Blaðið Sildin Blaðið Reginn Siglufjarðarbíó MÍR-Bíó Bíó-Sögur Ýmsar heimildir Nafnalisti Tenglar til Bíósíðna Tekið af netinu

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar:

MÍR-BÍÓ !

"MÍR-Bíó" fór fyrst að sýna kvikmyndir á Siglufirði, árið 1950. Það var þegar deild félagsins "Menningartengsl Íslands og Ráðstjórnarríkjanna"  var stofnuð á Siglufirði (13. júlí 1950).

Fyrst var sýnt í Siglufjarðarbíó, en fluttist síðan í Nýja Bíó, - og var þar um tíma með vikulegar sýningar. Þar voru auðvitað eingöngu Rússneskar kvikmyndir á boðstólnum, þó einstöku sinnum Austurþýskar.

Þegar klúbburinn hér á Siglufirði eignaðist sýningarvél, rak Kristján Sigtryggson trésmiður, þetta MÍR-Bíó í Sjómannaheimilinu við Suðurgötu og Kommahöllinni við Suðurgötu 10, til skiptis. Notuð var ein 35 mm. rússnesk sýningarvél, sem gefin hafði verið af "rússnesku þjóðinni".

 

Aðsókn á þessar sýningar, stóð engan vegin undir kostnaði, enda að líkindum greitt af "sendiráðinu". Mjölnir, meir að segja kvartar yfir lélegri aðsókn, jafnframt því hann dásamar þessar myndir í hástert.

 Skoðið þá umsögn: HÉR

 

Í DAG, árið 2002:  Félagið MÍR, Menningartengsl Íslands og Rússlands,
Vatnsstíg 10, 107 Reykjavík