er öllum hér á Siglufirði vel kunnur, en til að kynna hann
frekar, þeim sem ekki þekkja hann:
Hann er sonur þeirra hjóna Ernu Rósmundar og Jóhanns
Rögnvaldssonar bifreiðastjóra.
Þór hefur lengi verið haldinn söfnunaráráttu eins og svo margir
- og eitt af því fjölmarga sem hann hefur safnað er ýmislegt sem tegist bíó,
ma. aðgöngumiðar, progröm ofl.
Hér til hægri eru tenglar sem beina þér á síður þar sem þú
getur séð brot úr safni hans.
Hér fyrir neðan er smávegis tengt einum af frumkvöðlum kvikmyndasýninga
á Siglufirði, þó ekki sé beint tengt bíórekstri, en sýnir við hvað Matthías
Hallgrímsson, bíóeigandi á Siglufirði hafði ma. fyrir stafni.
Þetta "Nafnspjald" fann Þór í rusli,
er verið var að breyta húsakynnum
"Nýja Bíó", eftir að Nýja Bíó hf.
hafði selt eignina árið 1999.
Nafnspjaldið sést hér (aðeins stærra
en frummyndin), bæði bak og fyrir, en
það var prentað í prentsmiðju
Odds Björnssonar á Akureyri árið 1908