Bíó-saga Siglufjarðar, formáli
Þessar síður innihalda ýmsan fróðleik varðandi sögu kvikmyndasýninga
á Siglufirði
Átæða þess að ég tók mig til er einföld; ég tel mér málið það skylt að ég
get ekki staðist þá freistingu að að koma á framfæri, því sem ég þekki til
sögunnar og í leiðinni að afla þeirra gagna sem til eru skráðar varðandi bíó
söguna og koma því á framfæri á aðgengilegasta miðli nútímans.
En nánast einu gögnin sem til eru á prenti um kvikmyndasasýningar á
Siglufirði, er það sem skrifað hefur verið í heimablöðin, þá oftast "nöldur
greinar" og greinar spekinga sem allt þóttust vita, en vissu þó ekkert um
þessa tækni. Og ekki má gleyma auglýsingunum. Þessu öllu ásamt því sem ég hefi
sjálfur haldið til haga, mun ég koma hér á framfæri.
Þá mun ég einnig leitast við að falast eftir "Bíó-sögum" frá fólki sem
stundaði bíó á Siglufirði í gamla daga, en allskonar atvik hafa átt sér stað
tengt bíóferðum í gegn um tíðina.
Eins og ég sagði í upphafi þá tel ég mér málið skylt, skýringin á því er sú
að faðir minn hóf störf við kvikmyndahúsið Nýja Bíó á Siglufirði aðeins 11-12
ára gamall , en starfaði síðan við sýningar þar til dauðadags.
Sjálfur hóf ég sýningastörf, við Nýja Bíó á Siglufirði 14 ára gamall sem
afleysingamaður og lauk þar starfi sem sýningarstjóri, eftir rúmlega 50 ára
starfsferilferil.
Notið leitarvélina til að
leita af einstökum atriðum.
Steingrímur Kristinsson