Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Formáli Bíó Vikublaðið Fram Vikublaðið Siglfirðingur Gamli Mjölnir Mjölnir Blaðið Neisti Einherji Blaðið Brautin Blaðið Sildin Blaðið Reginn Siglufjarðarbíó MÍR-Bíó Bíó-Sögur Ýmsar heimildir Nafnalisti Tenglar til Bíósíðna Tekið af netinu

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar:

Úr blaðinu

 

SÍLDIN

sem gefið var út af síldarsaltendum og fleirum.

 

SÍLDIN 5. ágúst 1939

MOLAR

Íslandskvikmyndin var sýnd hér  á dögunum.

Mörg skínandi falleg  atriði eru í myndinni s.s. fossarnir  og laxastökkin, eins ýmis atriði úr  herpinótaveiðinni; síldartorfan, háfunin ofl. Mörg atriði er aftur á  móti leiðinleg og ekki sýnandi  ókunnugum, eins og td. ýmis  sóðaskapur og hirðuleysi, sem sést  alltof vel í kaflanum um síldarverkunina.

Myndatökumaðurinn hefur verið  annaðhvort of ókunnugur eða óheppinn í vali. Mest saknar maður  þess, í kaflanum um síldveiðina  sem helst einkennir þessa atvinnugrein, en það er: HRAÐINN;  Siglufjarðarhraðinn.

það er eins  og valin hafi verið hægasta vinnan  og silalegustu handtökin. Ein kona  sást þó hausskera og leggja niður.  síld af mesta myndarskap.

Hitt var  bara "puð". Hvers vegna fékk  maður ekki að sjá nót kastað og  "snurpað"?

það er þó sýningarvert.  Eða þá frákeyrslu við grófsöltun,  eða kverkun- og niðurlagningu í  fyrstu tunnur við grófsöltun, svo  sem 50 stúlkna röð.

Það mundi  hvarvetna vekja hrifningu. þarna  var sýnt mikið af lélegri vinnu  lítið af góðri. Fólkið, bæði sjómenn  og síldarverkunarfólk, sem sást á  myndinni, var hraustlegt- og mennilegt.

Ef jafnframt hefði verið sýnt,  hvernig það gat unnið hraðast og  best, var hægt að afla sér með því  virðingar og trausts í útlöndum,  eins og mig minnir að einhver  blöð hafi talið að umrætt  myndarkorn væri líklegt til að  gera.

Engin undirskrift