Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Formáli Bíó Vikublaðið Fram Vikublaðið Siglfirðingur Gamli Mjölnir Mjölnir Blaðið Neisti Einherji Blaðið Brautin Blaðið Sildin Blaðið Reginn Siglufjarðarbíó MÍR-Bíó Bíó-Sögur Ýmsar heimildir Nafnalisti Tenglar til Bíósíðna Tekið af netinu

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar. Elsta auglýsingin

Þessi auglýsing hér fyrir neðan, er "kopía" af auglýsingu sem prentuð var á 25x40 sm (umþb.) örk - Auglýsingunni hefur verið dreift um Siglufjörð, fest á ljósastaura og veggi, einhvern tíma á árunum  1913 -1917. Jón Andréjs Hinriksson varðveitir frumrit þessarar auglýsingar. En auglýsingin fannst á meðal skjala úr dánarbúi manns, sem lést árið 1917, þannig að auglýsingin er tilkomin fyrir árið 1917.

En á þessum tímum var ekkert kvikmyndahús komið á Siglufjörð, og mun þetta hafa verið sýning Norskra faralds sýningaraðila sem ferðast hafa um Ísland - og komið við á Siglufirði.  Barnaskólinn var (núverandi) var byggður árið 1913 og mun leikfimisalur hans hafa verið notaður sem samkomuhús, einkum á sumrin. En  árið 1918 var rekið þar kvikmyndahús, eins og segir frá annars staðar hér á vefnum.

Í kvöld kl. 8½
Verða sýndar
LIFANDI MYNDIR
í barnaskólanum
===========


Þar verða meðal annars sýndar myndir úr


STRÍÐINU MILLI RÚSSA OG JAPANA


teknar af herfréttaritara Rogers


KÓSAKKAR að sýna reiðlist sína á völlunum við Múkden,

Rússneskar HERSVEITIR á ferð yfir Baikalvatnið í 40 stiga frosti,

Tungúshöfðinginn Li Tang líflátinn 3. maí 1904 hjá Múkden,
Flutningar Rauða krossins,              Úr orustunni við Jaluelfi,
            Strandið á Goodwin-sandi, Björgunarbáturinn fer út,
                     Í Circus barnum: 300 fílar, 150 spilagosar.


Inngangur: betri sæti: fullorðnir 1.00, börn 0,50
       Almenn sæti              "        0,50,   "     0,25

NORDISKE BIOGRAF CO. Apparat nr. 3.  Flekkefjörd. NORGE

                                                                                                                Ísafolsdarpr.sm.

Stafsetningin og textinn, hér fyrir ofan, er sá sami og var á frumritinu. Einnig er líkt eftir upphaflegri uppsetningu. Auglýsingin var prentuð hjá Ísafoldarprentsmiðju, en textinn: "Í kvöld kl. 8½ - í barnaskólanum" var handskrifaður.