Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Haförninn með olíu Barnið vaknaði..(1) Snóflóð (2) Karlakórinn Vísir Haförninn í hafís Haförninn fastur Haförninn og  hafís Verksmiðjurnar og... Flotanum er nauðsyn... Með ljúfu geði Ísuð síld söltuð 873 síldartunnur 13- Snarráður ökumaður Á Síldarmiðunum Svipmyndir úr síldinni Geiri og Guggan Saltað um borð Dælt úr Eldborg GK ofl.

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Miðvikudagur 14. ágúst 1968

Ljósmyndir: Steingrímur, texti og val: Mbl.

Svipmyndir úr síldinni

Rússnesk móðurskip eru mörg á miðunum norður í hafi og sýnir myndin eitt þeirra. Móðurskipið er um 10 þúsund lestir, en veiðiskipið er um 300 lestir að stærð. Veiðiskipið er með síld í nótinni og er það að háfa jafnóðum og lestað er úr því um borð í móðurskipið.

Togarinn Víkingur landaði síld á Siglufirði. Á myndinni sést saltað úr skipinu við skipshlið. Röð síldarsöltunar stúlkna var meðfram skipinu og þær söltuðu af kappi, þrátt fyrir kalsaveður.

Stúlkurnar hafa snör handtök við síldarsöltunina á Siglufirði og það er betra að það bíti vel, þegar hausskorið er. Á myndinni sést Magnús Ásmundsson "stála" hnífana fyrir stúlkurnar. 

Guðrún GK er þarna að háfa úr 150 tonna kasti, spriklandi síld sem landað var svo í Haförninn, sem fór með síldina til bræðslu.

Það er stundum háfað annað en síld úti á miðunum við Svalbarða. Þarna hefur háfurinn verið fylltur af matvælum og öðrum nauðsynjum frá Haferninum og verið er að hífa um borð í síldveiðibátinn.

Þegar kostur er fluttur á milli skipa á rúmsjó eru margar hendur á lofti. Á þessari mynd sjást skipverjar á Brettingi Vopnafirði taka til höndunum við birgðaflutning úr Haferninum.