Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Haförninn með olíu Barnið vaknaði..(1) Snóflóð (2) Karlakórinn Vísir Haförninn í hafís Haförninn fastur Haförninn og  hafís Verksmiðjurnar og... Flotanum er nauðsyn... Með ljúfu geði Ísuð síld söltuð 873 síldartunnur 13- Snarráður ökumaður Á Síldarmiðunum Svipmyndir úr síldinni Geiri og Guggan Saltað um borð Dælt úr Eldborg GK ofl.

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

  Bland dagsetninga: 5 klausur tengdar síldinni 1968

 Morgunblaðið. 9 júlí

Verksmiðjurnar  bíða - landað í  Haförninn

FYRSTU síldinni var landað á Stöðvarfirði i fyrrakvöld. Vélbáturinn Gígja frá Stöðvarfirði kom með síldina af miðunum og fór hún öll í bræðslu.  Að sögn frétta Morgunblaðsins á Stöðvar-firði, gaf  síldin af sér óvenju mikið lýsi.

Árni Gíslason er  skipstjóri á Gígju,og má geta þess að hann kom einnig með fyrstu  síldina í fyrra og þá einnig til Stöðvarfjarðar. Bræðsla stóð yfir í  alla fyrri nótt og var henni lokið í gærmorgun.

Gígja hélt  áfram á miðin og verksmiðjan bíður eftir meiri síld.  Svipaða sögu mun að segja um aðrar síldarverksmiðjur  á Austfjörðum, en nú munu bátarnir á miðunum landa um  borð í Haförninn, sem þar er staddur. Auk Hafarnarins  var síldarflutningaskipið Síldin á leið á miðin í gærkvöldi.

Fréttaritari  Morgunblaðsins um borð í Haferninum skýrði frá því í  gær, að um kl. 6.45 f.h. hafi verið byrjað að lesta síld úr  Neskaupstaðarbátunum Barða og Bjarti og hafi afli  þeirra verið um 500 tonn.

Lestunin gekk vel og hélt  Haförninn lengra til norðurs um kl. 11. Nærri 2O bátar  munu vera á miðunum við Bjarnarey eða á leið á miðin.

====================================================

Haförninn Hefur tekið við  1375  tonnum

Haferninum, 11. júlí.

Óhagstætt veður og lítil  veiði í gær.

NORÐVESTAN kaldi var á miðunum í gær og í dag og nær  engin veiði. Baldur EA og Heimir SU fengu þó 20 tonn hvor í fyrrinótt.

Í nótt fékk  Helga II ER 20 tonn og Kristján Valgeir 30 tonn og losa þau í salt í Elisabeth  Hentzner. Um 1375 tonnum hefur nú verið lestað í Haförninn.

Hér eru rússnesk, norsk, þýsk, og íslensk síldveiðiskip allt í kring. Eru íslensku  skipin 32 að tölu. Flotinn heldur sig á svæðinu frá, 76.° að 77.15°  norður-breiddar og 9° austur lengdar.

Fyrir skömmu var haft samband við vesturþýskt sjúkraskip til að koma til hjálpar íslenskum sjómanni, sem slasast hafði lítillega um borð í  einu síldveiði-skipanna. 

  -Steingrímur.

====================================================

Haförninn landar síld

Siglufirði, 16. júlí.

Haförninn kom hingað í morgun með fyrstu síldina, sem hingað berst í sumar.  Er skipið kom hingað, um kl. 5 í morgun hófust smávegis lagfæringar á því, en síðan  var tekið til við að landa síldinni, sem var 3229 tonn og .921 kíló. Síldin fer að  sjálfsögðu öll í bræðslu og er það Síldarverksmiðja ríkisins (SR 46), sem tekur við  henni. Löndun hefur gengið vel og er búist við, að Haförninn fari aftur út með  morgninum.

          Steingrímur.

====================================================

Síldarbátana skortir vatn

Skeyti frá Haferninum kl. 20:22, 22 júlí.

Lögðum af stað heim, kl. 14 með 3345 tonn. Aflahæstu skipin hér eru mb. Gígja og  Kristján Vallgeir með 1300 og 1200 tonn.

Það hefur komið í ljós að flutningaskipin  anna ekki vatns-þörf bátanna og fimmtíu báta-skipstjórar hafa farið þess á leit við  Skipstjórann á Haferninum, að í næstu ferð komi hann með 600 tonnum meira vatn en  venjulega. Fimmtíu og fimm íslensk veiðiskip eru nú á miðunum.

                    Steingrímur.