Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Haförninn með olíu Barnið vaknaði..(1) Snóflóð (2) Karlakórinn Vísir Haförninn í hafís Haförninn fastur Haförninn og  hafís Verksmiðjurnar og... Flotanum er nauðsyn... Með ljúfu geði Ísuð síld söltuð 873 síldartunnur 13- Snarráður ökumaður Á Síldarmiðunum Svipmyndir úr síldinni Geiri og Guggan Saltað um borð Dælt úr Eldborg GK ofl.

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Þriðjudagur 6. febrúar 1968 

Snjóskriða féll á íbúðarhús í Siglufirði:

BARNIÐ VAKNAÐI - SÁ OG HEYRÐI SNJÓSKRIÐUNA KOMA   ----- Segir móðirin í samtali við Morgunblaðið.

Siglufirði 5. febrúar.

AÐFARANÓTT Og morgun sunnudagsins 4.  febrúar geisaði hér aftakaveður af norðri með mikilli bleytuhríð. Snjóskriða féll á  íbúðarhús númer 76 við Suðurgötu og olli stórskemmdum. Engin slys urðu á fólki.  Í þessu ofviðri fuku þakplötur af húsinu númer 58 við Suðurgötu, gluggar brotnuðu  í nokkrum húsum og gúmmí-reim á stóru síldarfæribandi hjá S.R, slitnaði. Tvær  minni snjóskriður eyðilögðu skúra, þar sem geymt var hey.

Það var um klukkan 8.20 á sunnudagsmorgun, að hjónin Jónína Víglundsdóttir  og Þórir Björnsson rafvirki vöknuðu við það, að elsta dóttir þeirra. Gunnhildur 7 ára.  stökk upp í rúmið til þeirra, og sekúndubroti síðar fylltist svefnherbergið ógnar  þrýstingi og hávaða.

Það tók hjónin nokkur augnablik að átta sig á því, hvað væri að gerast og  vissu þau það raunar ekki fyrr, en Þórir kveikti ljós og sá áð komið var mikið  magn af snjó inn i svefnherbergið. Snjóflóð! hrópaði hann til konu sinnar og dóttur  Og þaut áleiðu til herbergis sonanna tveggja, Hermanns 5 ára og Birgis 6 ára, en  leiðin var allt annað en greið þessa tvo til þrjá metra, sem eru frá  svefnherbergisdyrum þeirra hjóna, að herbergi bræðranna.

Gangurinn, sem fara þarf eflir. var fullur af snjó og Það sem verra var,  glerbrot voru í snjónum. Að vísu hafði snjór farið inn til drengjanna en ekki skaðað  þá. Þeir höfðu vaknað við hávaðann og voru hræddir, sem von var.

Þórir kom drengjunum inn í svefnherbergið til konu sinnar og fór að huga að  verkfæri eða einhverju, sem hægt væri að moka með snjónum út úr  svefnherberginu svo unnt yrði að loka dyrunum. Því af gegnumtrekk, sem  myndaðist af völdum brotinna glugga var stórhríð inni í húsinu ekki siður en úti. 

Tókst Þóri að ná í stóran potthlemm og með honum gat hann mokað þar til  svefn-herbergisdyrunum varð lokað.

Þá fyrst var farið að huga að skjólbetri fötum,  en fjölskyldan öll hafði fram að þessu verið í náttfötunum einum klæða. Fætur  þeirra hjóna og hendur voru blóðrisa eftir glerbrot. þó ekki alvarlega, nema hvað  Þórir fékk óþægilegan skurð á annan hælinn.

Síminn var týndur einhvers staðar í  snjónum. svo ekki varð náð hjálp gegnum hann.

Nábúi Þóris, Reynir Sigurðsson, trésmiður, vaknaði við einhvern  óvenjulegan hávaða og leit út.

Sá hann þá þakplötur og timburrusl úr þaki  íbúðarhúss Þóris. Reynir brá fljótt við, hringdi fyrst yfir, en þegar enginn ansaði klæddi hann sig og fór út.

Hann gerði  sér strax grein fyrir því sem gest hafði, en á meðan var Þórir að reyna að  komast út úr íbúð sinni til að ná í hjálp, en það var ekki auðvelt í fljótu bragði. því  alls staðar var snjór fyrir, bæði hurðum og gluggum, úti og inni.

Reynir byrjaði strax að moka snjónum frá eldhúsglugganum, sem Þórir svo  opnaði. Þeir ræddust við um ástandið, en síðan fór Reynir inn til sín og hringdi í  allar áttir eftir .aðstoð, sem kom svo fljótt að furðu sætti.

Á meðan fóru hjónin með börnin yfir til heimilis Reynis. Ég frétti ekki af þessu  snjóflóði fyrr en búið var að moka snjónum út og koma hirðanlegum húsmunum,  sem voru fáir, í geymslu. En aðkoman var ljót - húsgögn fyrir tugi þúsunda  mölbrotin, gólfteppi í stofu og holi rennblaut, sundur-tætt og skorin. Hurðir brotnar  af hjörum, skilrúmsveggir brotnir og farnir, spónlagðar plötur á veggjum ónýtar  vegna breytu. Að auki var svo hálft þakið farið af húsinu. Svona mætti lengi telja  og er ekki að efa, að tjón það sem þarna hefur orðið skiptir hundruðum þúsunda  króna.

Hús þetta er nýtt og hafði fjölskylda þóris, aðeins búið í því i þrjá mánuði. Húsið var ekki tryggt fyrir snjóflóðum, en Þórir hafði heimilistryggt og mun því fá einhverjar sárabætur fyrir  skemmdu húsgögnin.

Ég náði tali af eiginkonu Þóris, sem þá var heima hjá mágkonu sinni, og  sagði hún mér m.a., að dóttir þeirra, Gunnhildur, hefði vaknað rétt áður en ósköpin  dundu yfir og var á leið af salerni þegar hún sá og heyrði skriðuna koma. Hljóp hún  í ofboði undan snjónum

Sagði Jónina að þau hefðu að sjálfsögðu öll orðið mjög hrædd, en raunar  hefði þó allt það versta verið afstaðið áður en þau voru almennilega vöknuð, því  snjóskriðan var ekki nema nokkrar sekúndur að ryðjast inn, en aftur á móti hvein  mikið í vindinum og hríðin smaug um allt húsið. Tekið skal fram að yngsta barn  þeirra hjóna svaf inn í svefnherberginu hjá þeim. Jónína vildi þakka tilhögun á  innréttingu hússins, að ekki náði meiri snjór inn í svefnherbergin og ekki hvað síst  að húsið er að hálfu niðurgrafið þeim megin, sem að fjallshlíðinni snýr,

Þau hjónin vilja flytja öllum þeim, sem lögðu hönd að verki við björgun og  bráðabirgðaviðgerð innilegt þakklæti.

                 - Steingrímur.