Þetta
er sýnishorn af "prógrömmum" sem algengt
var að seld væru með aðgöngumiðunum. En
þetta var einskonar söguúrdráttur um
efni myndarinnar sem sýnd var - og kom
sér vel fyrir þá sem ekki gátu skilið
það tungumál, ensku eða dönsku, sem voru
algengustu tungumál sem töluð voru í
kvikmyndum (um 1940-1950) Íslenskur
texti var ekki með myndunum, en oft
danskur.
Hér fer á eftir texti
"prógrammsins" hér við hliðina, Ath. ef
þú villt sjá prógrammið stærra, þá
smellirðu á myndina
SYSTURNAR
OG SJÓLIÐINN
HLUTVERKASKRÁ:
John Dyckman
Brown 111. ..Van
Johnson
Patsy Deyo .
.. .. .. . . . . . . . .
June Allyson
Jean Deyo . . . . . .
. . . . .... . Gloria DeHaven
Billy Kipp ... .. ..
.. .. ........ .
Jimmy Durante
Frank Miller . . . .
. . . . . . . Tom Drake John
Dyckman Brown
1.............. Henry Stephenseri
John Dyckman Brown
11. . Henry O'Neil
Ben
.................................. Ben
Blue
Carlos . .. .. .. . .
. . .. . . . Carlos
Rctmirez
Ennfremur .
Jose .Iturbi .- .Lena
.Horn Gracie Allen - Albert Coates =
Virgina O'Brien - „The Wild
Twins"
Flarry James og
hljómsveit - Söngmær: Helen Forrest -
Xavier Cugat og hljómsveit
Söngmær Lina
Rornay Deyo-systurnar, Patsy og Jean,
eru svo að segja aldar upp á leiksviði,
því foreldrar þeirra voru bæði leikarar.
Frægð hljóta systurnar, er þær eru
ráðnar til að syngja á „Club Florino" í
New York, þar sem hljómsveitir Harry
James og Xavier Cugat leika. Þótt Patsy
sé aðeins ári eldri, verður hún að vera
bæði móðir og systir fyrir Jean. Að
eðlisfari er Jean bæði ástleitin og
hverflynd, svo sjaldan líða margir
dagar mill þess, að Patsy verður að
binda endi á ástarævintýri Jean.
Það veldur systrunum miklum heilabrotum,
þegar Jean fara að berast blómvendir frá
ókunnum aðdáenda, sem kallar sig
„Einhver". Kvöld eitt bjóða systurnar
heim hóp hermanna; meðal þeirra eru
Frank Miller liðþjálfi og sjóliðinn
Johnny, og það leynir sér ekki, að þeir
eru báðir hrifnir af Jean. Skammt frá
íbúð systranna er gömul ónotuð
vöruskemma, og hafa systurnar orð á, að
auðvelt væri að breyta henni í
skemmtistað fyrir hermenn. Jean óskar
þess, að þær systur gætu komið þessu í
framkvæmd.
Næsta dag er systrunum tilkynnt, að þær
séu orðnar eigendur vöruskemmunnar -
gjöf frá „Einhverjum"! Skemman reynist
vera full af gömlum leikhúsútbímaði. Og
þarna hefir gamall kunningi systranna
leikarinn Billy Kipp, búið sem einbúi í
mörg ár. Jean óskar nú að, að þeim
bærist hjálp til að lagfæra húsakynninn
- og „Einhver" sér um að óskir hennar
allar rætast. Systurnar hafa enga
hugmynd um hver þessi leyndardómsfulli
,Einhver` er, þegar skemmtistaðurinn er
svo opnaður með mikilli viðhöfn. Frank
og Johnny eru viðstaddir. Patsy verður
ástfanginn aldrei þessu vant og finnur,
að Johnny væri tilvalinn fyrir Jean.
Billy Kipp hefir ásett sér að komast að,
hver „Einhver" sé, og að lokum kemst
hann á snoðir um, að „Einhver" er
milljónamæringurinn J. Dyckman Brown.
Þegar Patsy fréttir þetta skundar hún
til bústaðar milljónamæringsins, sem
reynist vera gráhærður öldungur, til að
vita hvað hann ætli sér fyrir með Jean.
öldungurinn kannast ekkert við þetta, en
kveðst eiga son, er beri sama nafn og
hann. En það fer á sama veg, sonurinn
kannast heldur ekkert við þetta. Þá er
sonarsonurinn sóttur og .nú skilur Patsy
hvernig í öllu liggur, því
sonarsonurinn, J. Dyckman Brown III. er
enginn annar en Johnny sjóliði.
Brown-feðgarnir verða báðir hrifnir af
Patsy, og fara báðir til að heyra hana
og Jean, tengdadótturina tilvonandi,
syngja. Patsy heldur líka, að Johnny
elski Jean og ætli að kvænast henni. En
Johnny hefir slíkt ekki í hug. Segir
hann Patsy, að hann hafi í fyrstu orðið
hrifinn af Jean, en svo farið að elska
Patsy. Jean tekur sér þetta ekki nærri,
því hún játar, að hún elski Frank
liðþjálfa.
Hljómleikar í myndinni:
„A Love Like Ours"
(June Allyson og Gloria de Haven syngja.
„Take It Easy"
(Virginia O'Brien syngur). ' ,,In a
Moment of Madness" (Helen Forres
syngur „Young Dean with a Horn"
(June Allyson syngur) „I'ou Dear"
(Buddy Moreno syngur).
„My Mother Told Me``
(Van Johnson, Tom Drake og Frank Sully
syngja).
„Thrill of a New
Romance" (Xavier Cugat og hljómsveit) .
„Sweet and Lovely"
(June Allyson og Gloria de Haven syngja)
.
„A Tisket a Taslcet"
(June Allyson og Gloria de Haven
syngja).
„Rumba, Rumba" (Lisa Romay
syngur). „Granada"
(Carlos Ramirez syngtur). „Paper
Doll" (Lena Horne syngur). „Estrellita"
(Harry James trompetsoló).
„Piano Consert fyrir
einn fingur" (Grarie Allen
leikur) . ,