Nýja
Bíó,
Siglufirði
Sýningar
í
kvikmyndahúsinu
Nýja
Bíó
á
Siglufirði
hófust
föstudaginn
18.
júlí
árið
1924,
þá
í
nýbyggðu
húsi
sérstaklega
ætluðu
til
kvikmyndasýninga.
Húsfylli
var
þetta
kvöld
(355
manns)
og
var
þar
auk
þess,
í
tilefni
frumsýningar,
tvísöngur
í
höndum
2ja
konsúla
á
staðnum
þeim
Þormóði
Eyjólfs
og
S.A.Blöndal.
Kvikmyndin
hét “Madsalune”, sem er Dönsk kvikmynd, framleitt á árinu 1921.
Húsfylli
gesta,
hafði
verið
boðið
kvöldið
áður
fimmtudag
17.
í
tilefni
af
vígslu
hússins,
frétt
um
það
á
síðu:
Vikublaðið
Sigfirðingur

Húsið
Nýja
Bíó,
um
1930.
Bíó
Café
á
efri
hæð,
nær,
svalir
og
sýningarklefi
efri
hæð
fjær.
Neðri
hæð
nær,
er
á
þessum
tíma
lagerpláss
og
afgreiðsla
Tóbakseinkasölu
ríkisins
sem
Thorarensen
hafði
umsjón
með,
þá
inngangur
í
Bíó
Café
og
bíóið
sjálft
og
síðan
skóbúð
(Bíó
Búðin)
sem
Thorarensen
rak.
Húsið
byggði
Hinrik
Thorarensen
læknir
og
rak
hann
Nýja
Bíó
í
tugi
ára
undir
rekstrarheitinu
Valur
H.f.,
eða
þar
til
synir
hans
tveir,
Oddur
og
Ólafur
tóku
við
rekstri
fyrirtækisins.
Oddur
var
lengur
við
reksturinn,
eftir
að
Ólafur
hætti
en
Ólafur
flutti
siðar
erlendis
þar
sem
hann
er
nú.
Árið
1982
seldi
Oddur
allar
eignir
Vals
hf.
Til
nýstofnaðs
fyrirtækis
Nýja
Bíó
hf.
sem
Steingrímur
Kristinsson
stofnaði,
síðar
gert
að
fjölskyldu
hlutafélagi,
enn síðar
eign
þeirra
feðga
Steingríms
Kristinssonar
Valbjarnar,
ásamt
eiginkonum
þeirra,
Steingrímur
rak
fyrirtækið
til
ársins
1992
en
þá
tók
sonurinn
við
rekstrinum
og
jók
umfang
og
rekstur.
Árið
1999
var
Nýja
Bíó
á
Siglufirði
elsta
starfandi
kvikmyndahús
landsins,
en
þá
jafnframt, “lauk”
samfeldum
ferli
hússins,
sem
kvikmyndahúss
þegar
Hlutafélagið
Nýja
Bíó
hf.
seldi
húseignina
til
Sparisjóðs
Siglufjarðar,
sem
samhliða
seldi
Íslandsbanka,
sem
og
seldi
Tómasi
Pétri
Óskarssyni
veitingamanni,
sem
áður
rak Billann
við
Lækjargötu.
Tómas
gerði
umfangsmiklar
breytingar
á
húsnæðinu
sem
hentar
veitingarekstri,
til
dans
og
samkomustaðar,
en
ekki
þó
kvikmyndasýningum
að
sinni,
en
sá
möguleiki
er
þó
opinn,
ef
síðar
þykir
ástæða
til.
Snemma á árinu
2002 fór reksturinn "á hausinn" og Sparisjóður Siglufjarðar (Hvanndalir ehf.)
yfirtók eignina, sem og leigði út reksturinn til Guðrúnu Helgu Jónsdóttur sem
hefur, keypt rekstrarfélagið Bíóbarinn ehf og hefur þegar tekið við rekstri
hússins.