Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Eldur Vélaverkstæði Svínabú Eldur-bland Þrjár brunasögur Eldur tunnuverksm. Eldur tunnuverksm. Börnin og brunaliðið Sex brunaútköll Eldur Haugasund Ráðhústorg 1 Fimm brunar Eldur & Hugleiðing Netastöð / Hótel Höfn Tóm síða

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

  Haugasund brennur
Heimild: Vikublaðið 21 maí 1932

Eldsvoði.

Húsið "Haugasund" brann til kaldra kola í gærmorgun.

     Í gærmorgun, um sjöleitið, varð vart elds í húsinu "Haugasund" (Suðurgata 2)   hér í bænum. Eldurinn kom upp með þeim hætti, að annar eigandi hússins,   Gunnar Bíldal, sem bjó í vesturenda þess, Hafði verið að hita asfalt (stálbik) á olíuvél,  til að gera að gólfi í húsinu. Hafði hann gengið frá vélinni og niður á náðhús, en  þegar hann kom upp aftur stóð allt herbergið í björtu báli, og var eldurinn þegar  svo magnaður, að við ekkert varð ráðið.

     Slökkvilið var þegar til kvatt, en þegar  það hafði komið brunaslöngum fyrir, logaði húsið allt innan Veður var blækyrrt,  og var því auðvelt verk fyrir slökkviliðið að verja næstu hús. Kjötbúðina og  kaupfélagið, enda sakaði þau ekkert. Húsið brann að mestu á tæpri  klukkustund. Það féll þó aldrei með öllu, og hangir austurendi þess uppi enn.  Slökkviliðið gekk mjög vasklega að verki, eins og svo oft áður, og tókst því að  slökkva eldinn að fullu á rúmum klukkutíma.

    "Haugasund" var all stórt tveggja hæða hús og stóð þar sem mætast Aðalgata og Suðurgata, á horninu vestan við  Lækjargötu. Það var byggt fyrir þá Magnús Þórðarson og Guðbrand Samúelsson  veturinn 1919, úr timbri og járnklætt. Núverandi eigendur þess voru þeir H. Thorarensen  læknir og Gunnar Bíldal kaupmaður. Bjuggu þeir báðir í húsinu, Bíldal niðri í  vesturendanum, en Thorarensen uppi í austurendanum.

     Úr íbúð Bíldals bjargaðist  eitthvað lítils háttar af innanstokksmunum, en Thorarensen, sem var nýfluttur í húsið og  bjó þar einn uppi í austurendanum, bjargaðist slippur og mátti varla tæpara standa.

    Tvær sölubúðir voru í húsinu og höfðu eigendurnir þar verslanir, hvor í sínum enda. Úr  þeim bjargaðist sama og ekkert.

    Húsið var vátryggt í Brunabótafélagi Íslands, vörur Thorarensen munu og hafa verið vátryggðar, en innanstokksmunir  ekki.  -  Húsmunir Bíldals og búðarvarningur mun og hafa verið óvátryggt. Bíða þeir því  báðir all-tilfinnanlegt tjón.

 Viðkomandi ljósmynd var ekki birt með fréttinni úr Siglfirðing, heldur er kópían til í mínu fórum. En myndina fann ég bælda og rifna, í rusli í sýningarklefa Nýja Bíós árið 1986 ca. Sennilega úr eigu föður míns Kristins Guðmundssonar, sem var sýningarstjóri Nýja Bíós um áratugaskeið. En hann missti einmitt allar sínar eigur í þessum bruna, þá 18 ára, þar sem hann leigði  eitt herbergi hjá Thorarensen, en hann  var vinnuveitandi hans.   Ljósmyndari er ókunnur