Mjölnir 27. maí 1949
Bæjarpósturinn
Hugleiðing vegna bruna.
Eftirfarandi hugleiðingu var ég beðinn fyrir:
Á laugardaginn var, það er, 21. maí, var brunaliðið kvatt á vettvang.
Ég fylgdist með fólkinu, sem auðvitað hljóp, eins og, fætur toguðu niður á Hafnarbryggju, en þar hafði kviknað i mótorbátnum Millý-.
Þegar ég kom var brunaliðið komið og langt til búið að slökkva eldinn með vatnsslöngu Þeirri, sem alltaf er á Hafnarbryggjunni og notuð er til að afgreiða vatn til skipa.
En það sem furðu vakti var það, að stór hópur brunaliðsmanna var í kringum brunabílinn, en til þess að fljótar gengi að slökkva eldinn, atti að láta hina kraftmiklu dælivél bílsins, dæla sjó í brunaslönguna. Dælan vildi ekki vinna og var ekki komin í lag þegar eldurinn var slökktur.
Það getur auðvitað alltaf komið fyrir að vél bili, en mér datt bara í hug hversu geysilega þýðingarmikið það er, að þessi tæki séu alltaf í lagi og klykki aldrei.
Hugsum okkur að eldurinn hafi verið í timburhúsi, næsti vatnshani verið vatnslaus eins og oft hefur eflaust verið í vetur í sumum hverfunum, og vatnsforði bílsins verið það fyrsta, sem hægt hefði verið að grípa til, - en þá hefði dælan verið í ólagi; eldurinn magnast á meðan tilraunir stóðu yfir að koma henni í lag og töfin orðið til þess að húsið brenni til grunna. -
Á slíkum stundum er hver sekúnda dýrmæt. Þá veltur allt á því, að öll tæki séu í fyllsta lagi - og að þau séu alltaf í lagi hlýtur einhver að eiga að sjá um, að minnsta kosti brunaliðsstjóri.
Það er ekki víst, að alltaf sé hægt að . snúa brunaliðsútkalli upp í æfingu í meðferð brunatækjanna - oftast er meiri alvara á ferð en svo
Og munum svo þetta: Eldurinn gerir ekki boð á undan sér og hann bíður ekki heldur á meðan verið er að koma brunadælunni í lag.
Logi.