Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Eldur Vélaverkstæði Svínabú Eldur-bland Þrjár brunasögur Eldur tunnuverksm. Eldur tunnuverksm. Börnin og brunaliðið Sex brunaútköll Eldur Haugasund Ráðhústorg 1 Fimm brunar Eldur & Hugleiðing Netastöð / Hótel Höfn Tóm síða

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

   7 brunaútköll

Hér á þessar síður eru settar gamlar fréttir af eldsvoðum á Siglufirði. Frásagnir sem sóttar eru í gömul heimablöð útgefin á Siglufirði.  Einnig úr Morgunblaðinu frá 1963 og síðar

  

Siglfirðingur 27.janúar 1948

ÚR BÆNUM  (umræðudálkur / fréttir, í blaðinu Siglfirðingur)

Húsbruni.

Mánudaginn þann 19.  janúar sl. varð eldur laus í húsinu Aðalgötu 7,(1) hér í bæ. Húsið er  eign frú Önnu Vilhjálmsdóttur,  sem bjó þar ásamt syni sínum og  tveimur dótturbörnum. - Húsið  brann algjörlega.

Engu var bjargað af innbúi. Á neðri hæð hússins var bókaverslun Hannesar  Jónassonar, og geymsla fyrir  verslunin Sveinn Hjartarson. Þar  brann ekki mjög mikið, en  skemmdist allt af vatni og reyk.  Tjónið var mjög tilfinnanlegt.

 

Í sambandi við bruna þennan  finnst oss rétt, að minna á hversu  bíræfin bæjarstjórnin okkar er, að  leyfa sér að hafa öll hin verðmætu  og óbætanlegu skjöl bæjarins með  öllu óvarin fyrir eldi í hinu gamla  timburhúsi, "Hvíta húsinu." Þarna  sást, hvað eldurinn er fljótur að  eyðileggja og engu var bjargað. 

Hvernig færi, ef kviknaði í "Hvíta húsinu", ætli. yrði miklu bjargað  af hinum verðmætu skjölum, sem  myndi þýða mikið tjón fyrir Siglfirðinga í heild. Bæjarbúar munu,  ábyggilega fylgjast vel með því,  hvort bæjarstjórnin ætlar sér enn  lengur að gera ekki skyldu sína í  þessu máli, en það er að koma  skrifstofum bæjarins og skjölum  hans á óhultan stað.

Mjölnir 21 janúar 1948,  frétt

Húsbruni.

Aðalgata 7 brennur,  Hús Önnu Vilhjálmsdóttur, Aðalgata 7 hér í bæ, brann svo að segja til kaldra kola í fyrradag.

Innanstokksmunum og vörulager varð ekki bjargað, enda húsið alelda á örskammri stund.

Eldsupptök ókunn.              

Siglfirðingur 20 júlí 1948

 Eldur í bíl

Laust fyrir kl. 12 á hádegi í  gær var slökkviliðið kvatt út.  Hafði komið upp eldur í gamalli  fólksbifreið úr Árnessýslu, sem  hér var stödd.

Bifreiðarstjórinn hafði gengið  út úr bifreiðinni í Hverfisgötu,  augnablik.

Var nýbúið að setja  bensín á geymi hennar og hafði  nokkuð af því lekið niður á götuna, þar sem bifreiðin hallaðist  nokkuð. Litlir krakkar voru að  leik á götunni og voru með eldspýtur.

Þau munu hafa kveikt í  bensíninu, og læsti eldurinn sig þá  þegar í stað í hjólbarða bifreiðarinnar. Bifreiðin skemmdist nokkuð  en börnin sluppu ómeidd.

 

Má það kalla sérstaka heppni,  að eldurinn skyldi ekki haf leiðst  í bensíngeymi bifreiðarinnar, en  slíkt hefði valdið sprengingu, sem  börnum þessum hefði orðið stórhætta af. Þetta atvik ætti að brýna  fyrir fólki að láta ekki börn sín  vera með eld að leik, því alltaf  er hættulegt, þegar óvita börn  ná í eldspýtur.

Vanist því að  geyma slíkt, þar sem börn ná til.  Reynslan er of dýrmætur kennari  til að taka ekki tillit til fræðslu  hennar.

Siglfirðingur, 12. ágúst 1948

 Kviknar í skipi

LAUST fyrir kl. 3 í gærdag, kom  upp eldur í skipinu Minnie E.A.  758, sem lá hér við bryggju við  S.R.P.

Verið var að gera við vél  skipsins og var vélarúmið opið. 

Vélstjórarnir voru uppi og urðu þá  varir við reyk, er þeim virtist  koma úr lest skipsins og opnuðu  þeir hana, en um leið gaus eldur  upp úr vélarrúminu.

Slökkviliðið  var kvatt út, en skipverjum tókst  að slökkva eldinn, áður en það  kæmi á vettvang. Skemmdir urðu  litlar sem engar.

Fyrsti vélstjóri  kvað sér óskiljanlegt, hvað orsakað hafði eldinn.

Einherji 26. júní 1948 Frétt.

HÚSBRUNI

Nokkru eftir miðnætti sl. nótt  kviknaði í Vetrarbraut 3 (Frón),  húseign Halldórs Guðmundssonar,  Virtist eldurinn koma upp í þakhæð hússins. Þegar blaðið fór í  pressuna var enn ólokið við að  slökkva eldinn.

Fólk slapp út á  nærklæðum og fátt eitt bjargaðist  af húsmunum. 10 til 15 manns  munu hafa orðið húsnæðislausir.

Einherji, í ágúst 1948

Fréttir úr bænum.

Eldur kom upp í vélskipinu Milly s.l. laugardag.  Frekar litlar skemmdir urðu, þó brann eitthvað af  rúmfatnaði og öðrum fatnaði skipverja.

Einherji 6. september, frétt.

Kviknar í síldveiðiskipi

Á þriðja tímanum í nótt varð vart elds í síldveiðiskipinu Ágústu, en það lá við bryggju Óskars  Halldórssonar útgerðarmanns. Slökkviliðið kom brátt á vettvang og tókst að slökkva eldinn sem var í vélarúmi skipsins. Í morgun var ókunnugt um eldsupptök.

(1)   Aðalgata 7 er í dag, árið 2002, lóðin þar sem Húsasmiðjan er til húsa á Siglufirði í dag.