Úr Vikublaðinu 
28. október
1948
HVAÐ ER Á SEYÐI
EF LOFTUR GETUR
ÞAÐ EKKI - ÞÁ HVER?
Loftur hefur nú gert. fyrstu
íslensku kvikmyndina með tónum og tali. Leika í mynd þessari margir
færustu leikarar íslensku þjóðarinnar og efni myndarinnar byggt á leikriti,
sem Loftur sjálfur samdi fyrir 25 árum síðan.
Þetta frumverk íslenskrar
kvikmyndagerðar hefur vakið mikinn áhuga og leikur mörgum forvitni á að
vita hver árangur þessa frumverks verður. Alkunna er það, að Loftur er
fær maður, sem lýkur hverju því verki með snilld, er hann hefur og eins
hitt, að margir færir leikarar koma fram í mynd þessari. Gefur það vonir
um, að mynd þessi muni vera góð, ekki síst vegna þess, að efni hennar er
tekið úr íslensku þjóðlífi.
Kvikmyndahúsgestir hér vænta
þess, að allt verði gert sem hægt verður til að fá þessa mynd hingað
norður, svo Reykvíkingar einir njóti ekki þeirra verka, er íslenskir
listamenn hafa upp á að bjóða. Kvikmynd Lofts hefur vakið forvitni, sem
verður að fá svölun.
------------------------------------------
Siglfirðingur 25. júní 1949
"Milli fjalls og fjöru"
Íslenska kvikmyndin "Milli fjalls og fjöru" var
sýnd á dögunum hér. Hinn kunni ljósmyndari, Loftur er brautryðjandinn á
þessu sviði. Margir þekktustu leikarar okkar koma fram í þessari mynd. Að
vísu verður ekki komist hjá því, að játa, að ýmsir "tekniskir" gallar eru á
myndinni, en þess verður að gæta, að þetta er byrjunarverk sem verður
vonandi vísir að öðru betra.
Þrátt fyrir þessa "teknisku" galla er myndin
að mörgu leyti góð. Efnið er þjóðlegt og skemmtilegt í senn. Leikarar fara
yfirleitt vel með hlutverk sín. Litirnir eru á köflum heillandi og lýsa
náttúrufegurð landsins vel.
Mynd þessari ber að fagna og vonandi lætur
Loftur ekki staðar numið með þessari mynd.