Úr Vikublaðinu 
10. apríl
1948
GÓÐUR GESTUR
Hingað í bæinn er kominn hr.
Kjartan Ó. Bjarnason, kvikmyndari. Hann hefur verið á Akureyri
unnafarið og sýnt þar Heklukvikmynd sína, ásamt nokkrum fleirum myndum.
Í gærdag og gærkvöldi sýndi
hann hér myndir sínar í fyrsta skiptið. Húsið var fullskipað.
Myndir Kjartans eru
gullfallegar og mjög gaman að sjá hversu mjög góðum myndum hann hefur
náð. Það er vart hægt að lýsa þessum kvikmyndum hans, svo að vel
fari. Fólk verður sjálft að fara og sjá þær og ég er þess fullviss,
að engin mun sjá eftir því kvöldi, sem fer í það að horfa á myndir
þessar.
Auk hinnar mikilfenglegu
Heklu-kvikmyndar sýnir Kjartan skíðakvikmynd frá landsmótinu
1947. Þar sjást nokkrir Siglfirðingar m.a. Jón Þorsteinsson, sem þá
varð skíðakóngur Íslands og Jónas Ásgeirsson.
Myndir hans af íslenskum
börnum, landbúnaðinum, öræfunum og Þjórsárdalnum eru allar sérstaklega
góðar.
Myndirnar munu verða sýndar
aftur einu sinni, eftir helgina, þar sem hann gat eigi fengið
kvikmyndahúsið lánað fyrr.
Um leið og ég þakka
Kjartani fyrir þessa góðu skemmtun, óska ég þess, að hann komi
hingað aftur með myndir sínar, og lofi þeim, sem ekki hafa haft
tækifæri til að skoða landið af eigin sjón og raun, að fara með
sér í ferðalag í kvikmyndum hans, og kynnast þannig sínu fagra
landi.
Áhorfandi.
-----------------------------------------
Siglfirðingur 1. september 1949
Fréttamyndir,
Kjartans Ó. Bjarnasonar.
Síðastliðinn fimmtudag sýndi Kjartan Ó.
Bjarnason nokkrar kvikmyndir hér, er hann hafði sjálfur tekið:
Myndirnar voru allar frekar vel teknar og með fallegum litum.
Sýndu þær bæði fagrar og ljótar hliðar á landi og þjóð.
Fyrsta myndin var frá Vestfjörðum. Sýnir hún
ljóslega hina undursamlegu náttúrufegurð Vestfjarða, atvinnulífið í
sjávarþorpunum, þar vestra og hið mikla fuglalíf í Æðey. Má það
kallast nýstárleg sjón á filmu, að sjá unga æðarfuglsins brjóta
skurnið af egginu og þegar blikarnir slást um fyrstu ungana, sem
elta móður sína til sjávar. Hefur Kjartan Ó. Bjarnason
kvikmyndað þetta á einkar skemmtilegan hátt og sýnt okkur í senn
dásemd náttúrufegurðar landsins og friðsamt líf dýra og manna, til
sjávar og sveita, þar vestra.
Önnur myndin var af óeirðunum í Reykjavík
30. mars sl. Hún sýnir hvorki náttúrufegurð né uppbyggjandi starf landsins
barna. Hún sýnir ekki einhuga þjóð, ekki bróðurhug - hún sýnir rök
hins alþjóðlega kommúnisma: grjót og ofbeldi.
Hugsandi mönnum er það ljóst, að
lögreglan, sem varði Alþingishúsið og stökkti grjótkastaralýð
kommúnista á flótta, var að gegna skyldu sinni, sem vörður laga og
réttar. Jafnframt er mönnum það ljóst, að ofbeldi kommúnistanna
ögraði starfshelgi hins háa Alþingis.
Menn sáu greinilega hvernig
Alþingishúsið, gluggar þingsalsins og skrifstofa forseta landsins,
Sjálfstæðishúsið, Austurvöllur og nágrenni hans voru útleikin.
Hraungrýti Austurvallar var upprifið, girðingar nærliggjandi húsa,
brotnar í barefli. - EYÐILEGGINGIN, -ÁSÝND KOMMÚNISMANS -
BLASTI VIÐ AUGUM BÍÓ-GESTANNA, ÞETTA KVÖLD.
Mynd þessi er átakanlegt dæmi um ofbeldi
kommúnistanna, þótt hún gefi engan vegin nógu sterka lýsingu á
upptökum atburðanna þennan dag. Hún sýnir þó sorglega sundrungu
þeirrar þjóðar, sem á framtíð sína og sjálfstæði undir einingunni
komið.
Þriðja myndin er tekin úr íslensku
sveitalífi. Dregur hún fram skemmtilegustu hliðarnar á sveitalífinu og
sýnir í senn síðustu leifar gömlu búskaparháttanna frá
"Framsóknar-tímabilinu" og síðan hvernig tæknin er tekin í þágu
landbúnaðarins, - hvernig vélarnar taka við af orfi og hrífu o.s.frv.
Gegnumgangandi í þeirri mynd er fegurð íslenskrar náttúru. Sú fegurð, sem
er andstæða þess ljótleika sem atburðirnir við Alþingishúsið
sýndu.
Kjartan Ó. Bjarnarson mun að líkindum
sýna myndir sínar hér aftur á morgun eða í vikulokin og ættu menn ekki
að láta þessar myndir fara fram hjá sér.
--------------------------------------------------
Ef þú smellir HÉR
geturðu skoðað aðra hlið - lýsingu, (allt aðra) á efni myndar Kjartans Ó
Bjarnasonar.