Karakórinn Vísir hélt upp á 40 ára afmćli sitt međ afmćliskonsert í Nýja Bíó, laugardaginn 18. apríl sl. Áđur en kórinn hóf sönginn, flutti Jóhann Jóhannsson, skólastjóri, hátíđaávarp og síđan söng kórinn : Ég vil elska mitt land.
Gerhard Schmidt
Söngskráin var mjög fjölbreytt, af íslenskum og erlendum lögum, ţar af nokkur útsett af söngstjóranum, Gerhard Schmidt. Söngnum Var mjög vel tekiđ af áheyrendum, og mörgum Siglfirđing hlýnađi um hjartarćtur viđ ađ heyra hinn ţróttmikla og fagra söng, ţví ţađ eru allmörg ár, síđan Vísir hefur sungiđ svo vel. Einsöngvarar voru Guđmundur Ţorláksson og Sigurjón Sćmundsson.
Fjörutíu og einn söng nú í kórnum, á öllum aldri. Sumir búnir ađ syngja međ kórnum í 40 ár, ađrir fáa mánuđi.
Tuttugu og sex hljóđfćraleikarar ađstođuđu kórinn seinni hluta söngskrárinnar, og tíu konur sungu međ í 2 síđustu lögunum, sem voru óperukórar eftir Verdi, sem stjórnađ var af Vincenzo M. Demetz.
Allt ţetta fólk, 76 manns, auk söngstjóranna tveggja, á ţakkir skyldar fyrir ógleymanlega ánćgjustund.
Ţá eiga söngstjórarnir, Gerhard Schmidt, núverandi söngstjóra Vísis, og raddţjálfarinn, Vincezo miklar ţakkir skyldar fyrir frábćrt starf unniđ í ţágu Siglfirskar söngmenntunar.
Ţarna var kórinn á ćfingu í Siglufjarđarkirkju
Karlakórinn Vísir var stofnađur í janúar 1924, og fyrsti söngstjóri og ađal hvatamađur ađ stofnun kórsins, var Halldór Hávarđarson, en söngstjórar .kórsins hafa veriđ fimm, ţar af Ţormóđur Eyjólfsson lang lengst, eđa um 24 ára skeiđ, og undir stjórn hans var kórinn međ bestu, kórum landsins og fór ţá margar söngferđir víđs vegar um landiđ.
Stjórn kórsins skipa, nú Sigurjón Sćmundsson, formađur, Daníel Ţórhallsson, ritari Guđmundur Jónasson, gjaldkeri. Egill Stefánsson varaformađur Sigurđur Gunnlaugsson, vararitari. Einherji flytur kórnum bestu afmćlisóskir og ţakkar ánćgjustundir á liđnum árum.