Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Fyrsta Bíóið Bíófréttir-auglýsingar Grein: Óholl skemmtun Grein: Skemmtanir Bíó-fréttirauglýsingar Grein: Samkomuhús Bíófréttir-auglýsingar Bíó-auglýsingar Bíó-fréttir Bíófréttir-auglýsingar

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

Bíó-Saga Siglufjarðar: Bíófrétt

Fyrstu skrifaðar heimildir um Bíó-hús eru frá 20 janúar 1917 í blaðinu Fram, en þar er talað um vonbrigði vegna Grímudansleiks sem fram fór í "Bíó"  ekki er frekari grein gerð fyrir húsinu, né hvar þetta "Bíó hús" var staðsett.  - Þá er einnig getið um "Bíó" í tengslum við stofnfund Ungmannafélags, en Guðmundur Skarphéðinsson kennari boðaði til hans með greinarkorni þann 20. maí 1917, einnig í blaðinu Fram

11. mars 1918,  í dálknum Bæjarfréttir:

Leikfimisal Barnaskólans, hefur hreppsnefndin leigt Jens Eyjólfssyni kaupmanni hér til kvikmyndasýninga. Er ráðlegt að það taki til starfa strax í sumar.

_____________________________________________________________

Frétt á forsíðu 29. júní 1918

Nýja Bíóið.

Nú er verið að byggja skúr úr steinsteypu við endann á leikfimishúsinu til þess að setja í vélar þær, er nota skal við hinar fyrirhuguðu kvikmyndasýningar hér.   

Er skúrinn nokkuð nærri götunni, en það gerir ekki svo mikið til, því fyrsta lagi mun það ekki koma í bága við byggingasamþykkt Siglufjarðar, hún er ósköp þægileg og góð viðureignar og í öðru lagi munu menn ekki ybbast mikið yfir þó einhver óþægindi yrðu af þrengslum við götuna, svo er gleðin og ánægjan mikil hjá mörgum yfir að hafa fengið þennan nýja útgjaldapóst --  kvikmyndasýningarnar -- í bæinn.

 

 Við erum framfarafólk Siglfirðingar og alveg rétt af okkur að láta það sjást, að við hvorki þurfum né viljum spara neitt við  okkur, þó allur heimurinn stynji undan þunga stríðsins.

  En hvert mál hefur tvær  hliðar. Leigan sem hreppurinn fær eltir leikfimishúsið er ekki smá Átján hundruð  krónur á ári En hvaðan koma þær? Koma þær ekki úr vasa fólksins er býr hér og  þurfa ekki þeir sem húsið leigja að fá margfalt fé til þess að geta borgað þessa háu  leigu?

 

Með því að leigja leikfimishúsið hefur hreppsnefndin lagt 1800 kr.ársskatt á bæjarbúa, í þrjú ár sem gengur í hreppssjóð En hún hefir jafnframt lagt á bæjarbúa þann skatt sem innifelst í ágóða þeirra manna sem húsið hafa leigt og fyrir fyrirtækinu standa og hann verður ekki lítill, reynslan hefur sýnt að  kvikmyndafélögin hafa grætt stórfé um allan heim.

 

Aðrar eins ráðstafanir og  þessar eru víðsjárverðar þegar litið er á þetta mál í fullri alvöru þá.virðist svo sem full ástæða hefði verið til að reyna að hindra að þetta fyrirtæki fengi fótfestu hér fyrr en eftir stríðið.

Hér skulda menn   hreppnum lífsnauðsynjar fyrir þúsundir króna og geta ekki með hægu móti borgað, þó er ekkert gert til að fyrirbyggja ný útgjöld, heldur þvert á móti  stuðlað að því, að möguleikar séu fyrir menn að eyða sínu fé til óþarfa.

 Vonandi  er, þegar byrjað verður að sýna hér kvikmyndir, að eftirlit verði haft með að ekki  verði sýndar siðspillandi myndir, þær eru til og geta haft óútreiknanlega áhrif.    H.J.

_____________________________________________________________

Fram, 20. júlí 1918,  í dálknum Bæjarfréttir:

Bíó.

Nú er langt komið útbúnaðurinn við bíóið hér og verða byrjað sýningar mjög fljótlega. Eru 2 menn  komnir hingað úr Reykjavík er að því vinna.

Auglýsing í Fram 10. Ágúst 1918:

H.f. Siglufjarðar-bío

Sýnir kvikmyndir á hverju kvöldi.

<>O<>O Ágætar myndir ! <>O<>O

Skrifarinn verður sýndur í kvöld kl. 8-9 og 9½-10½

Sunnudaginn verður sýnt

Föðurlausa barnið kl.7-8½- 9½ og 10-11

Næstu viku verða sýndar ágætar myndir t.d.

Umhverfis jörðina á 80 dögum,

Einstæðingurinn ofl.

Nánar auglýst á götunum

H.f. Siglufjarðar-bío.