Gísli Elíasson fv. verksmiðjustjóri SREggert Theódórsson fv. lagestjóri SRÓkunn blómarós hjá SRStrákagöng við SiglufjörðFrá vígslu KFS 1966Togarinn Hafliði og GoðinnHaförninn "fastur í ís"

Bland frétta Skíðamót Íslands ´70 Þeir búast á grásleppu Þrjár fréttir

Ljósmyndasafn Steingríms, á netinu

Til forsíðu
Til baka

>LEITARVÉLIN

Hafðu samband:

Póstfangið mitt

Gefðu mér upplýsingar um nöfn sem mig vantar

  Bland dagsetninga 1970

Innbrotafaraldur,  og íkveikja á Siglufirði

Signufirði, 28. september. 

AÐ MORGNI þriðjudagsins 22. síðastliðins varð maður var við talsverðan reyk koma úr  mannlausu húsi hér í bæ og gerði hann umsvifalaust slökkviliðsmanni, sem hann hafði séð á  gangi í nágrenninu viðvart og innan nokkurra mínútna hafði slökkviliðsmönnum tekist að ráða  niðurlögum eldsins með slökkvitækjum.  Eldurinn var ekki mikill, aðeins ný kviknaður, en það sem þeim er að komu virtist undarlegt,  var að brjótast þurfti inn í húsið gegnum tvílæstar dyr, þar sem neglt var rækilega fyrir alla  glugga í hinu yfirgefna húsi . Húsið er eims konar braggi. Ekkert rafmagn var á húsinu og  ummerki þannig að talið er að um íkveikju sé að ræða. Ef það reynist rétt, þá mun brennuvargurinn hafa sloppið. Samkvæmt upplýsingum bæjarfógeta,, Elíasar Í. Elíassonar er  málið í rannsókn

Nokkuð hefur borið á innbrotum og öðrum afbrotum að undanförnu hér, m.a. var brotist  inn í Áfengisverslun ríkisins fyrir nokkru, en þar voru menn staðnir að verki. Tvö til þrjú innbrot  eru enn óupplýst, þar á meðal innbrotið í afgreiðslu Morgunblaðsins í fyrri viku. Nokkuð hefur  og borið á ölvun unglinga hér í bæ, m. a. síðastliðið 1augardagskvöld. Þá munu ærsl hafa. verið  á götum úti, m. a. brotnar tvær rúður og kveikt bál í rusli og bensíni á götum.          SK

Óvenjulegur krónupeningur. 

Siglufirðir 26. september.    

Mynd þessa sendi fréttaritari Morgunblaðsins á Siglufirði, Steingrímur  Kristinsson. Á henni eru tveir krónupeningar, en sá til vinstri er óvenjulegur að því  leyti að hann er allur miklu rýrari en venjulegur krónupeningur.   Þessi óvenjulegi krónupeningur vegur aðeins 3,25 gr. í stað 4,90 gr. Þykkt hans  er aðeins 1.31 mm að meðaltali í stað 1.70 mm. Þvermál peningsins er aðeins  20,35 mm 22,50 --- Á peninginn vantar algjörlega upphleyptu röndina á jaðri hans og riflaða rönd hans. Báðir peningarnir komu úr  sama pokanum, sem innihélt 100 krónupeninga og hafa ekki verið í umferð áður -  Slegnir 1969.                      SK

Mbl. hafði tal af Magna R. Magnússyni, myntsölumanni og spurðist fyrir um  þetta fyrirbæri. Hann sagði að slíkir peningar ættu að flokkast úr strax eftir  myntsláttuna, en fyrir kæmi að einn og einn peningur slæddist í gegnum eftirlit. Væru  þetta gallaðir peningar og vissi hann dræmi um slíkan pening frá 1963. Peningar  sem þessir eru nokkuð eftirsóttir, fyrir safnara, en þó væri sjaldgæfara ef peningurinn  væri tvísleginn eða eins og Eitt Sinn kom fyrir 1969 við slátt 10 aura að bakhlið peningsins var spegilmynd af framhliðinni.  Höfðu tveir peningar slegist saman í sláttunni.  

Eldur í báti á reginhafi.

Siglufirði, 27. október.  

ELDUR kom upp í vb. Tjaldi frá Siglufirði, er hann var að sigla til veiða í gærmorgun  Skipverjum tókst að hefta útbreiðslu eldsins, og sigla til hafnar aftur, þar sem slökkviliðið beið  og slökkti eldinn.

Tjaldur hafði siglt í rúma klukkustund, þegar menn í stýrishúsi skipsins sáu háseta, sem  sofa átti fram í káetu koma upp. Hann gerði vart við sig, en fór síðan niður aftur til svefns.  Kom síðar í ljós, ati hann hafði aðeins farið upp til að fá sér frískt loft, þar sem honum þótti  óþægilega heitt niðri í káetunni. Þegar þessi maður kom niður aftur  gaus skyndilega upp eldur bak við kabyssuna, og flýtti maðurinn sér þá hið skjótasta út, og  gerði aðvart.

Skipverjar hófu strax slökkvi starf. Tæmdu þeir úr öllum slökkvitækjum á eldinn, en dældu  einnig sjó á eldinn, auk þess sem þeir byrgðu öll op til að kæfa eldinn. Þessu næst höfðu þeir  talsamband við nálægan bát og báðu hann að vera til taks, ef á þyrfti að halda. Eins var haft  samband við land, og beðið um að slökkvilið væri til taks, er báturinn kæmi að. Var þessu næst  siglt á fullri ferð til lands, og beið slökkviliðið við bryggjuna, og slökkti eldinn að fullu, en hann  var þá orðinn lítill.

Tjaldur, sem er um 70 tonna bátur, var minna skemmdur, en búast mátti við. Beðið er  matsmanns, og enn ekki ljóst, hversu mikil viðgerð verður að fara fram.           - S.K.